Upplýsingar um NFS á íslensku

Norræna verkalýðssambandið, NFS, var stofnað árið 1972 sem samráðs- og samræmingaraðili fyrir heildarsamtök launafólks á Norðurlöndunum.

Fimmtán sambönd frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Grænlandi og Svíþjóð eiga aðild að NFS. Félagsmenn í aðildarsamtökum NFS eru um 9 milljónir og koma af öllum sviðum atvinnulífsins.

Markmið NFS er að treysta öflugt samstarf aðildarsamtakanna. Starfið felst í upplýsingamiðlun og samráði, sameiginlegri stefnumótun og aðgerðum er varða vinnumarkaðinn og hagsmuni launafólks. Þetta á við um efnahags-, atvinnu- og félagsmál í víðasta skilningi. Þá er það verkefni NFS að upplýsa og fræða um stefnu og áherslur norrænnar verkalýðshreyfingar.

Það er hlutverk NFS að hafa áhrif á samstarf ríkisstjórna og þjóðþinga Norðurlandanna og koma á framfæri sjónarmiðum verkalýðshreyfingarinnar með því að hafa áhrif á Norrænu ráðherranefndina og Norðurlandaráð. Þá er það hlutverk NFS að samræma afstöðu og starf aðildarsamtakanna á innan alþjóðlegra samtaka og samstarfsvettvangs launafólks innan ETUC, ICFTU og TUAC og á vettvangi ILO.

Aðsetur NFS er í Stokkhólmi, Svíþjóð.

Af Íslands hálfu eiga ASÍ og BSRB aðild að NFS:

Medlemmar - Island
Medlemmar - Grönland
Drottninggatan 75 S-111 60 STOCKHOLM SWEDEN Tel. +46 (0)8-20 98 80 Fax +46 (0)8-789 88 68